nóvember 30th, 2008

Jább, ég var að stofna svona lítinn vinahóp sem inniheldur mig og Berg, mömmu og pabba og Sæu og Hjört. Við ætlum að hittast og hafa mega gaman nokkrum sinnum á ári, enda erum við einn af þessum litlu vinahópum :P Við ætlum samt ekki að skilja neinn útundan því við erum ekki þannig vinir… Við ætlum til dæmis að hafa jólaföndur eftir próf, það verður mega gaman, er nefnilega búin að kaupa fullt af föndri, svona skrapp dæmi :P Svo ætlum við líka að baka piparkökur saman og skreyta :D Svo verður auðvitað spilakvöld líka, vantar bara dagsetningu á það :lol:

Jájá, þannig er það nú gott fólk… Ég fer í mitt fyrsta og eina próf á fimmtudaginn svo er ég bara komin í jólafrí híhí :mrgreen: Mega stuð :P Þá get ég farið að plana hitting fyrir litla vinahópinn minn ;)

Eigið góða daga (L)

Posted in Almennt | 5 Comments »
nóvember 27th, 2008

Var að finna myndavélina mína, hún var full af myndum frá því í sumar hehe :) Ákvað að skella einni hérna inn, set svo hinar í albúm hérna til hliðar við tækifæri :)

Sumarið 2008

Posted in Almennt | 2 Comments »
nóvember 13th, 2008

Já, við fluttum inn á mánudaginn, erum búin að gista 3 nætur og ég held að ég hafi bara sjaldan sofið jafn vel :) Ég vakna aldrei við vekjaraklukkuna og þegar Bergur segir mér að klukkan sé búin að hringja þá held ég alltaf að hann sé að plata mig :lol:

Það er orðið rosalega kósý hjá okkur, fengum gefins hornsófa frá frænda hans Bergs þannig að það er eitthvað í stofunni hjá okkur hehe :P Við keyptum okkur líka sófaborð og sjónvarpsborð í IKEA sem er rosa flott :) Í næsta mánuði ætlum við svo að kaupa borðstofuborð svo við getum haldið matarboð og spilakvöld og sonna híhí :mrgreen:

Mér finnst samt voðalega leiðinlegt að vera flutt að heiman, kannski fæ ég ekki að hitta mömmu á hverjum degi :( En sem betur fer er ég ennþá í Hafnarfirði, ég hefði ekki meikað að vera lengra í burtu :) Svo er reyndar ekki langt að labba til mömmu og pabba, bara niður áslandsbrekkuna og niður og niður og þá er ég komin :P Svo býr Ása mín og Solla rétt hjá, það er mjög gaman :) Ég er komin með svo mikið ógeð af að taka upp úr töskum og raða og flytja ohh, ég hugsa að ég eigi aldrei eftir að flytja aftur! Þvílíkt leiðinlegt!

Já, datt í hug að setja inn smá jólagjafalista hérna, jólin eru nefnilega alveg að koma og best að ljúka jólainnkaupunum sem fyrst áður en allt fer til fjandans :P Þetta er svona það sem okkur vantar eins og er, gæti örugglega bætt helling við listann en man ekki meira akkurat núna :)

Kökuform, Hraðsuðuketill, Mixer, Töfrasproti, Brauðrist, Bökunarplötur, Uppskriftabækur, Hnífasett, Ílát, Viskustykki, Ausur, Hitabrúsi, Skurðarbretti, Stórt sigti
Hitaplattar

En meiri fréttir seinna, bæjó :)

Posted in Almennt | 1 Comment »
nóvember 8th, 2008

Við Bergur fórum semsagt að skoða 97fm, 3 herbergja íbúð upp í Áslandi í gær, vorum búin að skoða nokkrar áður sem okkur leist ekkert á, en þessi var geggjuð!! :D Leigumaðurinn sagði að það væru margir sem vildu leigja hana, hann þyrfti bara að velja úr og ætlaði að hringja í þá sem hann vildi leigja íbúðina fyrir kl 17 í dag og viti menn, hann hringdi í okkur :lol:

Við Bergur minn erum semsagt að fara að búa saman í þessari æðislegu íbúð hehehe :P Mamma ætlar að gefa okkur þvottavél og Sæa ætlar að gefa okkur potta og pönnu, þurfum bara að fá okkur þetta stóra í stofuna og svo auðvitað ostaskera því hann er mjög mikilvægur á hverju heimili! :mrgreen:

Spennandi tímar framundan :D

Posted in Almennt | 2 Comments »
nóvember 3rd, 2008

Vá hvað tíminn líður hratt!! Það er kominn nóvember og á morgun erum við Bergur búin að vera saman í 10 mánuði (l) Bráðum ár !! Og það er bara mánuður eftir af skólanum :P Ég er að byrja í áfanga núna á miðvikudaginn þannig að það verður svolítið mikið að gera í nóvember en það er bara fínt, gott að hafa mikið að gera :)

Ég var að fá tvær einkunnir í dag fyrir ritgerðir, fékk 8.0 fyrir aðra og 8.2 fyrir hina, nokkuð gott :D Þá er ég búin að fá þrjár 8 og tvær 9 … :P

Úúú, bráðum koma jólin og hann Bergur minn ætlar að bjóða mér á jólatónleikana með Björgvini Halldórssyni híhí :mrgreen: Hlakka til :P

Jæja, bara smá fréttir, maður er svo lítið úti nú til dags hehe :lol:

Bæjó (l)

Posted in Almennt | 2 Comments »
október 25th, 2008

Ég vildi bara minna ykkur á að

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt :)

Kv. Rebekka Rós (L)

Posted in Almennt | 2 Comments »
október 21st, 2008

Datt í smá pælingar um daginn… Ég spurði Walter og Kristjönu að því að þegar þau væru hjá mömmu sinni hvort að hún væri þá að passa þau og þau sögðu bæði nei, hún væri ekki að passa þau. Þá spurði ég hvort að pabbi þeirra væri að passa þau þegar þau væru hjá honum og þá sögðu þau já… Fór að spá í afhverju þetta væri??

Posted in Almennt | 2 Comments »
október 14th, 2008

Ég er búin að vera að reyna að finna tíma til að blogga í viku!! úff :(  Ég hef svo margt að segja og svo man ég örugglega ekki helminginn af því :S  hehe

Byrjum á ballinu, sem var fyrir lööööngu en ég átti alltaf eftir að segja frá því! hehe :P Við Bergur ákváðum ekki að fara fyrr en við vorum komin á ballið hehehe :D Ég hafði samt farið í ríkið til vonar og vara og svo ætluðum við bara að sjá til :) Aldís kom í heimsókn og við kíktum svo í partý til Sigmars frænda og þar var bara geggjað gaman. Við fórum á ballið og ég held að ég hafi bara aldrei farið á svona skemmtilegt ball!! Við dönsuðum svo mikið og það var svoooo gaman að þið trúið því ekki :lol: Daginn eftir var ég með smá höfuðverk og dauðþreytt í öllum líkamanum eftir allan dansinn og Bergur fór og keypti pizzu með extra extra osti híhí :P

Það er búið að vera brjálað mikið að gera í skólanum, var að skila 16 bls. ritgerð í gær, þetta var hópverkefni og við hittumst á sunnudaginn til að klára og lærðum frá 10-23!! Shjett hvað ég var þreytt daginn eftir!

Núna er bara að skila annarri ritgerð fyrir föstudaginn og svo er bara mega tjill á næstu helgi :D Ætla kannski að kíkja á ball hjá Dýrfirðingafélaginu :P

Já, ég er að bíða eftir að fá eitt verkefnið í íslensku sent til baka, hlakka til að sjá tíuna sem ég fæ :mrgreen:

Þá er þetta komið, þó ég sé að gleyma helmingnum :lol:

Bæjó í bili :)

Posted in Almennt | 1 Comment »
október 2nd, 2008

Vissuð þið að alltaf þegar e-r býður ykkur valkosti og þið segið “mér er alveg sama” þá eruð þið að gefa öðrum leyfi til að taka ákvarðanir fyrir ykkur! Eins og í vinnunni, þegar ég er spurð hvort ég vilji frekar fara með börnunum inní herbergi að leika eða taka til eftir kaffið, og ég segi að mér sé alveg sama þó að mig langi ekkert að taka til eftir kaffið…!! En núna er ég byrjuð að taka mínar eigin ákvarðanir :D Og ef ég segi að mér sé alveg sama þá er mér bara virkilega alveg sama!! :)

Þessi færsla verður ekki lengri í dag þar sem að ég hef ekkert meira að segja :D

Bæjó (L)

Posted in Almennt | 3 Comments »
september 28th, 2008

Það var bjartur dagur í Hafnarfirði í gær þegar FH varð íslandsmeistari í fótbolta 2008 :D Við Ásthildur mættum á leikinn þegar 15 mínútur voru eftir, þá var staðan 1-0 fyrir FH og jafntefli útí Keflavík. Stuttu seinna skoraði Fram útí Keflavík og FH skoraði annað markið sitt og tryggði sér þar með bikarinn :D Við Snæi og Andri kíktum á Fjörkrána í gær þar sem meistararnir voru að fagna og þar var mikil gleði og alveg stappað af fólki :)

Svo er það bara meistaraballið krakkar mínir :D Held að það sé á næstu helgi og orðið á götunni er að Brimkló eigi að spila og að ballið verði ekki í Kaplakrika þetta árið heldur í íþróttahúsinu á strandgötu :)

Ég skellti mér á skrall í gær til hennar Ásthildar frænku, það var mjög gaman, absenth drykkja og læti hehe :P Held að stelpurnar séu soldið þunnar í dag, en ekki litli engillinn hún Rebekka híhí :D

Annars á ég að vera að læra, er eitthvað löt þessa helgi :S

Heyrumst gott fólk, bæjó (L)

Posted in Almennt | 2 Comments »