Ég er búin að vera að reyna að finna tíma til að blogga í viku!! úff :( Ég hef svo margt að segja og svo man ég örugglega ekki helminginn af því :S hehe
Byrjum á ballinu, sem var fyrir lööööngu en ég átti alltaf eftir að segja frá því! hehe
Við Bergur ákváðum ekki að fara fyrr en við vorum komin á ballið hehehe
Ég hafði samt farið í ríkið til vonar og vara og svo ætluðum við bara að sjá til
Aldís kom í heimsókn og við kíktum svo í partý til Sigmars frænda og þar var bara geggjað gaman. Við fórum á ballið og ég held að ég hafi bara aldrei farið á svona skemmtilegt ball!! Við dönsuðum svo mikið og það var svoooo gaman að þið trúið því ekki
Daginn eftir var ég með smá höfuðverk og dauðþreytt í öllum líkamanum eftir allan dansinn og Bergur fór og keypti pizzu með extra extra osti híhí
Það er búið að vera brjálað mikið að gera í skólanum, var að skila 16 bls. ritgerð í gær, þetta var hópverkefni og við hittumst á sunnudaginn til að klára og lærðum frá 10-23!! Shjett hvað ég var þreytt daginn eftir!
Núna er bara að skila annarri ritgerð fyrir föstudaginn og svo er bara mega tjill á næstu helgi
Ætla kannski að kíkja á ball hjá Dýrfirðingafélaginu
Já, ég er að bíða eftir að fá eitt verkefnið í íslensku sent til baka, hlakka til að sjá tíuna sem ég fæ
Þá er þetta komið, þó ég sé að gleyma helmingnum
Bæjó í bili ![]()