Það var bjartur dagur í Hafnarfirði í gær þegar FH varð íslandsmeistari í fótbolta 2008 :D Við Ásthildur mættum á leikinn þegar 15 mínútur voru eftir, þá var staðan 1-0 fyrir FH og jafntefli útí Keflavík. Stuttu seinna skoraði Fram útí Keflavík og FH skoraði annað markið sitt og tryggði sér þar með bikarinn :D Við Snæi og Andri kíktum á Fjörkrána í gær þar sem meistararnir voru að fagna og þar var mikil gleði og alveg stappað af fólki :)

Svo er það bara meistaraballið krakkar mínir :D Held að það sé á næstu helgi og orðið á götunni er að Brimkló eigi að spila og að ballið verði ekki í Kaplakrika þetta árið heldur í íþróttahúsinu á strandgötu :)

Ég skellti mér á skrall í gær til hennar Ásthildar frænku, það var mjög gaman, absenth drykkja og læti hehe :P Held að stelpurnar séu soldið þunnar í dag, en ekki litli engillinn hún Rebekka híhí :D

Annars á ég að vera að læra, er eitthvað löt þessa helgi :S

Heyrumst gott fólk, bæjó (L)

This entry was posted on sunnudagur, september 28th, 2008 at 15:46 and is filed under Almennt. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

2 Responses to “Meistarar”

Ásthildur Says:

Hahaa við skulum ekkert ræða þessa þvinnku ;) Dííí.. En það er pottþétt mæting á MEISTARABALLIÐ!!!!!!

Sólveig Says:

Ég hoppaði hæð mína af kæti þegar ég vissi að þeir hefðu orðið íslandsmeistarar:o) (sem er nú ekki mikil þar sem ég er nú ekki stór híhí) En það svo er það meistaraballið:) get ekki beðið!

Luvv:)

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>