Við Bergur fórum semsagt að skoða 97fm, 3 herbergja íbúð upp í Áslandi í gær, vorum búin að skoða nokkrar áður sem okkur leist ekkert á, en þessi var geggjuð!! :D Leigumaðurinn sagði að það væru margir sem vildu leigja hana, hann þyrfti bara að velja úr og ætlaði að hringja í þá sem hann vildi leigja íbúðina fyrir kl 17 í dag og viti menn, hann hringdi í okkur :lol:

Við Bergur minn erum semsagt að fara að búa saman í þessari æðislegu íbúð hehehe :P Mamma ætlar að gefa okkur þvottavél og Sæa ætlar að gefa okkur potta og pönnu, þurfum bara að fá okkur þetta stóra í stofuna og svo auðvitað ostaskera því hann er mjög mikilvægur á hverju heimili! :mrgreen:

Spennandi tímar framundan :D

This entry was posted on laugardagur, nóvember 8th, 2008 at 13:31 and is filed under Almennt. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

2 Responses to “Að fara að búa…”

Hildur frænka Says:

En æðislegt. Til lukku með þetta :). Það er svo gaman að fara að búa :).

Big syzzzz Says:

Já… ostaskeri er alveg möst…. sérstaklega fyrir ostasjúka eins og þig dúllan mín;)
En vá… ég hlakka til að koma og skoða hjá ykkur mjög fljótlega;)
Knús og kossar!!!

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>