janúar 4th, 2009

Já, það er komið alveg heilt ár frá því við Bergur byrjuðum saman (L)

Við kynntumst semsagt í gegnum facebook á Þorláksmessu 2007, fórum á fyrsta stefnumótið annan í jólum og vorum byrjuð saman 4. janúar 2008, ekki lengi að gerast :lol:

Þetta verður bara lítil færsla í dag, það er allt gott að frétta af okkur hérna í Erluásnum :)

Hafið það gott :)

Bæjó (l)

Posted in Almennt | 1 Comment »
desember 25th, 2008

Jæja, þá eru jólin gengin í garð og mikið er nú gott að vera komin í smá frí frá hversdagsleikanum :) Ég stóð í jólastússi fram á síðustu stundu vegna þess að ég átti eftir að kaupa jólagjöf handa honum Bergi mínum :) Það endaði með að ég fór bara í rúmfó og keypti hægindastól handa kallinum og verslaði smá jólaskraut í leiðinni :P

Ég var með familíunni út í grindó hjá Sæu systur í gærkvöldi og Bergur var með fjölskyldunni sinni :) Svo eftir að við vorum búin að opna pakkana þá brunuðum við heim til m&p að sækja stólinn til að koma honum heim til mín áður en Bergur kæmi heim hehe :lol: Við vorum nefnilega búin að ákveða að opna gjafirnar frá hvort öðru heima og líka þær sem voru stílaðar á okkur bæði :) Bergur fattaði strax hvað gjöfin hans var hehe en ég hélt að gjöfin frá honum væri kannski inneign í smáralindina eða eitthvað álíka… en svo var hann bara búinn að kaupa uppþvottavél handa mér :mrgreen: Við sækjum hana á laugardaginn og þá þarf ég ALDREI að vaska upp aftur!! Jess! :D Svo fékk ég líka hálsmen og eyrnalokka frá honum :) Annars fengum við fullt af flottum gjöfum, Snæi gaf okkur pönnuna sem okkur vantaði svo :) Við fengum:

Ýkt sæta brauðrist frá Sæu og Hirti

Töfrasprota og hraðsuðuketil frá mömmu og pabba

Mismunandi stór ílát frá Steina og Binnu

Jólakökuspaða frá mömmu og pabba Bergs

og margt fleira :)

Svo fékk ég auðvitað ein frá vinkonum og vinnunni:

Bleik kærleiksbjarnanáttföt frá Ásthildi

Geisladisk frá Aldísi

Blátt hjartajólaskraut frá Sollu

Ýkt flottan trefil frá mömmu hans Bergs

Geggjaða!! peysu úr íslenskri ull frá vinnunni

Svo fékk ég heimatilbúna uppskriftabók frá Sæu með uppskriftum sem hún skrifaði fyrir mig og svo get ég bætt við í bókina :D

En jæja, við Bergur erum að fara í afmæli út í Grindó og svo í mat til Elsu ömmu :)

Bæjó og gleðileg jól (L)

Posted in Almennt | No Comments »
desember 20th, 2008

Jæja, þá er ég búin að fá allar einkunnirnar mínar, fékk 7, 8, 9 og 9.5 :) Og ég er búin að fá stundatöfluna fyrir næstu önn og ég verð í skólanum alla daga nema miðgudaga og fer þrisvar sinnum norður :) sem minnir mig á það, þarf að fara að panta flug!

Ég er bara búin að vera löt í “fríinu” mínu… Bergur keypti flakkara um daginn og við erum með helling af þáttum og myndum, ég var að byrja að horfa á fyrstu seríuna af Gossip Girl og ég hugsa að ég verði bara í því öll jólin :P

Um daginn gerði ég misheppnaða tilraun til að elda, ætlaði að búa til pizzu eeeen það fór ekki vel :lol: Ætlaði nefnilega að gera hálfa uppskrift af deiginu en svo gleymdi ég því stundum þannig að það var ekki rétt magn af öllu hehe :P Þannig að við Bergur enduðum í mat hjá mömmu hehe, en ég bjó svo til dýrindis kanilsnúða úr deiginu, þeir voru reyndar svolítið öðruvísi en góðir samt :)

Jæja, ég ætla að röllta í jólaþorpið með Sæu, Walla og Sjönu :)

Gleðileg jól, hó hó hó :) 

Posted in Almennt | 1 Comment »
nóvember 30th, 2008

Jább, ég var að stofna svona lítinn vinahóp sem inniheldur mig og Berg, mömmu og pabba og Sæu og Hjört. Við ætlum að hittast og hafa mega gaman nokkrum sinnum á ári, enda erum við einn af þessum litlu vinahópum :P Við ætlum samt ekki að skilja neinn útundan því við erum ekki þannig vinir… Við ætlum til dæmis að hafa jólaföndur eftir próf, það verður mega gaman, er nefnilega búin að kaupa fullt af föndri, svona skrapp dæmi :P Svo ætlum við líka að baka piparkökur saman og skreyta :D Svo verður auðvitað spilakvöld líka, vantar bara dagsetningu á það :lol:

Jájá, þannig er það nú gott fólk… Ég fer í mitt fyrsta og eina próf á fimmtudaginn svo er ég bara komin í jólafrí híhí :mrgreen: Mega stuð :P Þá get ég farið að plana hitting fyrir litla vinahópinn minn ;)

Eigið góða daga (L)

Posted in Almennt | 6 Comments »
nóvember 27th, 2008

Var að finna myndavélina mína, hún var full af myndum frá því í sumar hehe :) Ákvað að skella einni hérna inn, set svo hinar í albúm hérna til hliðar við tækifæri :)

Sumarið 2008

Posted in Almennt | 2 Comments »
nóvember 13th, 2008

Já, við fluttum inn á mánudaginn, erum búin að gista 3 nætur og ég held að ég hafi bara sjaldan sofið jafn vel :) Ég vakna aldrei við vekjaraklukkuna og þegar Bergur segir mér að klukkan sé búin að hringja þá held ég alltaf að hann sé að plata mig :lol:

Það er orðið rosalega kósý hjá okkur, fengum gefins hornsófa frá frænda hans Bergs þannig að það er eitthvað í stofunni hjá okkur hehe :P Við keyptum okkur líka sófaborð og sjónvarpsborð í IKEA sem er rosa flott :) Í næsta mánuði ætlum við svo að kaupa borðstofuborð svo við getum haldið matarboð og spilakvöld og sonna híhí :mrgreen:

Mér finnst samt voðalega leiðinlegt að vera flutt að heiman, kannski fæ ég ekki að hitta mömmu á hverjum degi :( En sem betur fer er ég ennþá í Hafnarfirði, ég hefði ekki meikað að vera lengra í burtu :) Svo er reyndar ekki langt að labba til mömmu og pabba, bara niður áslandsbrekkuna og niður og niður og þá er ég komin :P Svo býr Ása mín og Solla rétt hjá, það er mjög gaman :) Ég er komin með svo mikið ógeð af að taka upp úr töskum og raða og flytja ohh, ég hugsa að ég eigi aldrei eftir að flytja aftur! Þvílíkt leiðinlegt!

Já, datt í hug að setja inn smá jólagjafalista hérna, jólin eru nefnilega alveg að koma og best að ljúka jólainnkaupunum sem fyrst áður en allt fer til fjandans :P Þetta er svona það sem okkur vantar eins og er, gæti örugglega bætt helling við listann en man ekki meira akkurat núna :)

Kökuform, Hraðsuðuketill, Mixer, Töfrasproti, Brauðrist, Bökunarplötur, Uppskriftabækur, Hnífasett, Ílát, Viskustykki, Ausur, Hitabrúsi, Skurðarbretti, Stórt sigti
Hitaplattar

En meiri fréttir seinna, bæjó :)

Posted in Almennt | 1 Comment »
nóvember 8th, 2008

Við Bergur fórum semsagt að skoða 97fm, 3 herbergja íbúð upp í Áslandi í gær, vorum búin að skoða nokkrar áður sem okkur leist ekkert á, en þessi var geggjuð!! :D Leigumaðurinn sagði að það væru margir sem vildu leigja hana, hann þyrfti bara að velja úr og ætlaði að hringja í þá sem hann vildi leigja íbúðina fyrir kl 17 í dag og viti menn, hann hringdi í okkur :lol:

Við Bergur minn erum semsagt að fara að búa saman í þessari æðislegu íbúð hehehe :P Mamma ætlar að gefa okkur þvottavél og Sæa ætlar að gefa okkur potta og pönnu, þurfum bara að fá okkur þetta stóra í stofuna og svo auðvitað ostaskera því hann er mjög mikilvægur á hverju heimili! :mrgreen:

Spennandi tímar framundan :D

Posted in Almennt | 2 Comments »
nóvember 3rd, 2008

Vá hvað tíminn líður hratt!! Það er kominn nóvember og á morgun erum við Bergur búin að vera saman í 10 mánuði (l) Bráðum ár !! Og það er bara mánuður eftir af skólanum :P Ég er að byrja í áfanga núna á miðvikudaginn þannig að það verður svolítið mikið að gera í nóvember en það er bara fínt, gott að hafa mikið að gera :)

Ég var að fá tvær einkunnir í dag fyrir ritgerðir, fékk 8.0 fyrir aðra og 8.2 fyrir hina, nokkuð gott :D Þá er ég búin að fá þrjár 8 og tvær 9 … :P

Úúú, bráðum koma jólin og hann Bergur minn ætlar að bjóða mér á jólatónleikana með Björgvini Halldórssyni híhí :mrgreen: Hlakka til :P

Jæja, bara smá fréttir, maður er svo lítið úti nú til dags hehe :lol:

Bæjó (l)

Posted in Almennt | 2 Comments »
október 25th, 2008

Ég vildi bara minna ykkur á að

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt :)

Kv. Rebekka Rós (L)

Posted in Almennt | 2 Comments »
október 21st, 2008

Datt í smá pælingar um daginn… Ég spurði Walter og Kristjönu að því að þegar þau væru hjá mömmu sinni hvort að hún væri þá að passa þau og þau sögðu bæði nei, hún væri ekki að passa þau. Þá spurði ég hvort að pabbi þeirra væri að passa þau þegar þau væru hjá honum og þá sögðu þau já… Fór að spá í afhverju þetta væri??

Posted in Almennt | 2 Comments »