mars 27th, 2008
Ég held að ég hafi aldrei gert þetta áður þannig að ég ætla að prófa þetta núna
Comentaðu nafninu þínu og..
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
7. Ég segi þér eitthvað sem bara þú og ég skiljum
8. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt
Endilega commentið 
mars 25th, 2008
Halló
Þá eru páskarnir bara búnir
Líka góða ríseggið sem Bergur gaf mér, en ég á samt ennþá eitt frá Nóa
Á föstudaginn fórum við Bergur á Hótel Heklu sem er rétt hjá Flúðum, það er mjög flott hótel, geðveikt góður matur og svo er svona leikherbergi þar sem maður getur farið í pool, borðtennis, spilað ofl.
Svo er heitur pottur sem við fórum í á nærfötunum því við gleymdum að taka sundföt
Þetta var bara æði, takk ástin mín
Í gær fórum við Bergur með Kubb, hundinn hans Bergs í heimsókn til Spurðans, það var soldið fyndið!
Kubbur er bara 4-5 mánaða og Spurðann þvílík frekja, og hann gelti og urraði á Kubb sem skalf af hræðslu, nema þegar Spurðann snéri baki í hann þá elti hann hann og reyndi að þefa af rassinum á honum en forðaði sér um leið og Spurðann snéri sér við
Jáhh, þessi litli loðbolti minn er greinilega e-ð orðljótur því ekki lítur hann nú mjög ógnvæglega út hehehe
Góða daga… 
mars 17th, 2008
Halló
Þetta er nýja bloggið mitt
Kv. Rebekka 
mars 17th, 2008
Jess, 3 dagar í frí 
Þá fer Rebekka í frí, fer í leyndó “helgarferð” með Bergi og fær svo ríspáskaegg frá Freyju á sunnudaginn
Jeyjjj
Það eru 76 dagar (ef ég hef talið rétt) þangað til að við förum til Costa del Sol og ég er komin í átak núna, this time for real! Ætla að líta vel út í sólinni, ekki það að ég sé búin að fitna e-ð hehehe, en það er samt allt í lagi að grennast smá 
17 dagar í Prag
Men það verður gaman!! Er búin að finna út hvar allar H&M eru, og hvaða fleiri búðir eru í þeim mollum
Það verður samt bara tekinn einn verslunardagur og aðallega versluð barnaföt
Vona bara að gengið fari að lækka!!
Við Ástarpungarnir vorum að passa fyrir Sæu og Hjört um helgina, fórum í bíó á Horton, góð mynd sko
Það gekk allt rosa vel nema þegar Kristjana klemmdi höndina á sér á meðan hún var sofandi og svo var hún bara vakandi eftir það og við sváfum nánast ekkert
En það var allt í lagi, vitum bara núna hvernig er að sjá um heimili og 2 börn og það er ekki e-ð sem við erum tilbúin til að gera á næstunni… 
Svo í gær þá bónuðum við, Bergur og Snæi, bílinn minn, máluðum rúðuþurrkurnar svartar, Bergur setti ljós í mælaborðið og þarna þar sem gírarnir eru og í hitagaurinn… Núna er hann svaka flottur, bara verst að maður getur ekkert keyrt hann því bensínverðið er svo hátt 
Til hamingju með 21 árs afmælið í gær Ása mín
Ég vona að þetta hafi verið góð helgi hjá ykkur skötuhjúunum í bústaðnum

B.t.w. msnið hjá mér er ennþá bilað en vinnumailið mitt er rebekka@velar.is 
Heyrumst beibs 