apríl 28th, 2008

Og það hlýtur bara að fara að hlýna! Eitt er víst að það verður hlýtt hjá mömmu og pabba á Florida eftir nokkra daga :lol: Þá verðum við Bergsi heima að passa Snæa og Spurðann :P

Á föstudaginn er svo bara mánuður þangað til að við Bergur förum til Costa del Sol :D Það verður soldið leiðinlegt því að ég missi af heilum 2 vikum af Lilla eeen það verður bara að hafa það :$ Ég finn á mér að hann kemur 9 mai :lol: Það verður svooo gaman, ég hlakka mega mikið til :D

Er að hlusta á lagið sem Bubbi samdi fyrir vinningshafa þáttarins, hræðilegt lag, það er eins og það hafi verið samið á 3 mínútum og er alls ekkert rokk, meira barnagæla ef eitthvað er. Mér finnst mjög leiðinlegt að þessi frábæri söngvari lúti nú einum af verri söngvurum landsins, þó hann sé nú asskoti góður lagahöfundur (en honum hefur þrátt fyrir það farið hrakandi með árunum!) Ég hefði viljað að þessi strákur (sem ég man ekki hvað heitir) fengi að þróa sína tónlist sjálfur en ekki syngja það sem Bubbi vill og eins og Bubbi vill að hann syngji það! Ég held að röddin hans njóti sín ekki nema að hann syngi það sem hann vill sjálfur syngja og fái að tjá það eins og hann vill! Hinn strákurinn hefði miklu meira verið týpa í þetta verkefni, enda þarf arftaki Bubba ekki að syngja neitt listavel. En það er nú bara mín skoðun…

Ég er ekki með fordóma gagnvart neinum en ég var að pæla í öllum þessum innflutningi á erlendu fólki. 14 % af fólki sem býr á höfðuðborgarsvæðinu eru útlendingar og 7% glæpa sem eru framdir þar eru af útlendingum. Ég er ekki að segja að allir útlendingar séu slæmir en kemur ekki að því að ísland fyllist af fjöldamorðingjum, nauðgurum og slæmu fólki??Ég tel íslendinga vera nokkuð heilbrigða þjóð! En maður er alltaf að heyra fréttir af fjöldamorðingum og klikkuðu liði á hinum Evrópulöndunum og við erum bara að bjóða hverjum sem er að koma að búa á litla landinu okkar sem hefur ef ég skal segja satt frá ekki næga reynslu í að leysa glæpamál til að höndla alla þessa glæpamenn! Afhverju ekki bara að reyna að leysa þá vanda sem ísland á við að stríða (s.s. fíkniefnavandann…) í staðinn fyrir að bæta bara á hann?? Ég kvíði fyrir að búa á Íslandi í framtíðinni og er að spá í að flytja til Færeyja!

Takk fyrir.

Posted in Almennt | 7 Comments »
apríl 23rd, 2008

Er á morgun, og þá á Bergur sæti afmæli :P Ég ætla að baka köku í kvöld því við erum að fara í kaffi til mömmu hans og pabba á morgun. Var að spá hvort að ég ætti að baka snikkersköku eins og ég gerði í síðustu viku (en Bergur smakkaði hana ekki) eða hvort ég eigi að prófa e-a af uppskriftunum sem ég fann á netinu um daginn?? :roll:

Gaman að fá svona frídaga inná milli :mrgreen:

Annars er bara voða lítið að frétta, er að fá e-ð leiðinda kvef, líklega afleiðing tjaldútilegunnar á síðustu helgi :? Og ég gleymdi líka að hafa trefil þegar við fórum út að hjóla í fyrradag, fraus næstum því á hálsinum :o Svo er ég alltaf svo roooosalega þreytt! Það er bara eiginlega óeðlilegt hvað ég er þreytt alltaf! Var að lesa um töflur sem eiga að gefa manni aukna orku, man að mamma keypti sér þannig um daginn. Spurning hvort að það virki… En það sakar ekki að prófa :)

Later :mrgreen:

Posted in Almennt | 3 Comments »
apríl 21st, 2008

Um helgina fórum við Bergur, Mamma & Pabbi, Sæa & Hjörtur og Walter & Sjana Sigga í útilegu í Hvalfjörðinn. Við Bergur afréðum eftir miklar pælingar að fara bara á bíl og sofa í tjaldi þar sem að Hvalfjörðurinn er soldið erfiður yfirferðar fyrir fólk á hjóli :) Við mættum fyrst á svæðið, svo komu mamma og pabbi, fengum alveg yndislegt veður í nokkra klukkutíma, sátum bara úti í sólbaði að prjóna :D Svo var grillað og tjillað, haha rííím :lol:

Ég mæli ekki með að sofa í tjaldi um miðjan apríl, það er alveg hriiikalega kalt, við vorum með 2 svefnpoka og 3 flísteppi, í 2 peysum og lopasokkum með vettlinga og húfur en samt var okkur ekki nógu hlýtt. Ég var komin á fætur kl 7, varla búin að sofa neitt, og skreið uppí rúm til mömmu og svaf þar í nokkra tíma á meðan (L) Bergur (L) tók saman og svo keyrðum við heim að sofa :) Sváfum yfir okkur því við ætluðum í afmæli til Mattíasar kl 3 en við misstum af því :(

Á fimmtudaginn er sumardagurinn 1. ! :D Mikið vona ég að það verði gott veður svo við getum farið í lautarferð á hjólunum okkar :P

Sjáumst :)

Posted in Almennt | 4 Comments »
apríl 18th, 2008

Okkur Bergi vantar hugmyndir um hvað vantar á netið? Síðu sem getur aðstoðað á e-n hátt, gefið upplýsingar… bara eitthvað… Mér datt í hug síða þar sem maður getur sett inn mynd af sér og breytt hárgreiðslunni til að sjá hvað passar manni, en það er víst hægara sagt en gert hehehe :D

Viljið þið endilega kommenta ef þið hafið e-jar hugmyndir!! Takk (L)

Posted in Almennt | 2 Comments »
apríl 17th, 2008

Eftir vinnu í gær fórum við í Örninn og sóttum hjólin okkar, með aðstoð pabba :D Svo í gærkvöldi var fyrsti hjólatúrinn :D Það var soldið skondið að hjóla eftir svona langan tíma, held ég hafi ekki hjólað í 7 eða 8 ár! :o Var soldið óstöðug fyrst og kunni ekkert á gírana, svo bætti ekki úr að það var rok… :/ En það var bara gaman, hjóluðum í hálftíma, er soldið aum í rassinum en það fylgir víst hehe :lol: Svo er bara að byrja að æfa fyrir útilegurnar í sumar, geta hjólað í vinnuna og uppí bústað og sonna :D

Við mamma erum að fara í kringluna á eftir :D Þarf að kaupa mér linsur… var að reikna út, linsukostnaðurinn minn á ári er 86.400kr og aðgerðin kostar 285.000, þannig að aðgerðin borgar sig eiginlega upp á tæpum 4 árum…

Var hjá tannsa í gær, engar skemmdir :D Hann pússaði brotnu tönnina mína niður þannig að oddurinn sem pirraði mig alltaf er loksins farinn :D Hélt að ég yrði gjaldþrota eftir þessa heimsókn en þetta kostaði bara 3500kr :lol:

— Update—

Í gærkvöldi eignuðust Gerður vinkona mín og Einar maðurinn hennar tvíburastelpur :) Rakel Anna fæddist 42cm og 1700 gr og Telma Rut fæddist 10 mínútum seinna og er 43.5cm og 1985 gr.

Til hamingju elsku dúllurnar mínar :)

 

Posted in Almennt | 3 Comments »
apríl 16th, 2008

Var að lesa á Visir.is um 18 ára stelpu sem strippar á msn fyrir greiðslu! Er Ísland virkilega orðið svona sick?? Þetta er pottþétt dópisti sem er að greiða dópneysluna sína með svona ógeði! Og hvaða ógeð borga fyrir að horfa á svona??? Eru það ekki bara gamlir ljótir kallar með bumbu sem geta ekki fundið sér konu?? Ég er bara svo aldeilis hlessa, ótrúlegt hvað sumir bera litla virðingu fyrir sjálfum sér! Mér finnst þetta ógeðslegt!

Posted in Almennt | No Comments »
apríl 15th, 2008

Ég er með fullt glas af pennum hérna uppí vinnu hjá mér og ég var að taka eftir því áðan að eini pennin sem ég nota er skærgræni BYR penninn… Ætli það sé eitthvað sálrænt? hehehe :lol:

Ég gleymdi að segja frá ferðinni okkar á laugardaginn í gær. Það er sko mál með vexti að pabba langar í sumarbústað og hann fann einn sem er rétt hjá Þingvallavatni og við, ég, Bergur, Mamma, Pabbi og Spurðann, lögðum upp í för til að skoða hann á laugardaginn var. Það var rosa skemmtilegt, við vorum með heitt kakó á brúsa og samlokur og súkkulaði, stoppuðum í næstum 2 klst. Það var pælt og planað og setið og drukkið og borðað, Spurðann var himinlifandi yfir að komast í sveitina og hljóp út um allt og reyndi að éta allt sem hann fann :lol: Mamma hellti helmingnum af kakóinu niður í e-jum kjánaskap hehehe :D En það var allt í lagi, Spurðann fékk að drekka það :D Svo keyrðum við í Hveragerði og fengum okkur ís í Eden og þá fékk ég alveg hrikalega tannpínu og er þess vegna að fara til tannlæknis á morgun. Var hjá Húðsjúkdómalækni í morgun og það er allt í lagi með alla fæðingablettina mína :D Svo í mai er ég að fara í athugun til að tjékka hvort að ég geti farið í laseraðgerð á augunum mínum. Soldið dýr aðgerð en Efling borgar 50 þús og það er allavega eitthvað :)

Við erum að fara að kaupa hjólin á eftir, Pabbi ætlar að koma á Benzinum að ná í þau því ekki komast þau inní litlu Kíuna hans Bergs hehehehe :lol:

Heyrumst :)

Posted in Almennt | 1 Comment »
apríl 14th, 2008

Jææjahh… Á morgun á fólk að vera búið að taka nagladekkin af bílunum sínum, sé það e-n veginn ekki gerast :o Sumarið á að koma á fimmtudaginn í næstu viku, þá á hann Bergur minn líka afmæli, þá gerum við eitthvað skemmtilegt, eins og að fara í lautarferð á nýju hjólunum sem við ætlum að kaupa okkur í vikunni :P Svo ætlum við að vera rosa dugleg að hjóla í sumar, kaupa okkur litla svefnpoka og lítið tjald og hjóla út á land í útilegur og sonna :D Um að gera að spara bílana og bensínið á meðan ástandið er svona…

Það var ýkt gaman í matnum á föstudaginn, allir mættu og rosa góður matur :D Eftir það fórum við Bergur og Snæi til Steina og Binnu að spila Party og Co, það var rosa gaman, þó að ég hafi nú tapað í öll skiptin, sama hverjum ég var með í liði, örugglega met hehehe :lol:

Sæa systir er að fara í sónar á eftir, þá kemur í ljós hvort að Lilli er ennþá sitjandi eða ekki… Vona að hann sé búinn að skipta um stellingu! :) Svo vona ég líka að hann fæðist ekki fyrr en mamma og pabbi eru farin því þá fæ ég að fara og passa á meðan hann fæðist :D Veit samt að mamma vonar andstæðuna hehe :P

Á næsta fimmtudag eru 3 vikur þangað til mamma og pabbi fara í siglinguna á Karabíska, þá verðum við Bergur heima að passa risabarn og hund :lol: Erum búin að ákveða að hafa grillpartý þegar Eurovision er og bjóða nokkrum góðum vinum :) Það verður geggjað :lol:

Þetta er gott í dag :)

Posted in Almennt | 3 Comments »
apríl 10th, 2008

Á þriðjudagskvöldið fórum við Bergur í heimsókn til Steina & Binnu, komum færandi, hendi, Steini fékk bjórglas frá Berlín í afmælisgjöf, Stelpurnar mínar fengu sitthvorn Hello Kitty kjólinn og bleikar leggings, Binna verður að bíða eftir sinni gjöf sem verður keypt útá Costa del Sol :lol:

Í gær fórum við Bergur svo útí Grindavík í mat til Sæu systur :) Það var grillaður skötuselur og lúða í matinn, það var nú bara alveg ágætt, betra en maður hefði ímyndað sér :D við komum með fullt af litlum strákafötum á Lilla, Kristjana fékk bleikan kjól og bleikar leggins, Walter fékk hauskúpu eyrnalokka, Hjörtur fékk rakspíra í afmælisgjöf og Sæa fékk skiptitösku :lol: Mér fannst eiginlega hálf sorglegt að þurfa að láta frá mér öll sætu litlu fötin því þau voru svo dúlluleg eeen ég fæ að sjá þau bráðum aftur og þá verður meira að segja einhver kominn í þau :D Svo nottla fæ ég þau aftur þegar ég verð ungamamma :lol:

Í gær kom það til tals hvað Sæu langaði mikið í Pizza Hut og við ákváðum í kjölfarið að hafa fjölskyldumat á Pizza Hut annað kvöld :D Þannig að ég byrjaði morguninn á að senda sms á liðið og athuga viðbrögðin… Pabbi og Binna voru meira en til í þetta, eins með Sæu og Hjört :) Mamma sagðist ætla að hugsa málið, en ég sagði henni að hún þyrfti ekki að pæla í þessu því við Bergur sækjum hana í vinnuna og hún hefði því ekkert val :lol: Snæi sagði bara Jibb og Steini er ekki ennþá búinn að svara en fyrst að Binna sagði já þá hlýtur hann nú að koma líka :D Góður matur á morgun :D :D

Sjáumst :)

Posted in Almennt | 3 Comments »
apríl 8th, 2008

Jææææja, þá er maður bara kominn heim frá útlandinu :) Hérna er smá ferðasaga :)

Föstudagur: Vöknuðum kl 04:45 og lögðum af stað útá flugvöll. Komum til Prag á milli 15 - 16, geggjað hótel og flott herbergi :) Ákváðum að labba á McDonalds með aðstoð GPS tækisins sem Bergur fékk lánað en það dó stuttu eftir að við lögðum af stað þannig að við urðum bara að bjarga okkur sjálf :P Fundum loksins staðinn eftir langt labb en maturinn var alveg þess virði :D Á leiðinni heim fundum við furðufatabúð og keyptum okkur hatta því það var hattakeppni í hátíðarmatnum kvöldið eftir :D Þann daginn var ekki gert mikið meira en að borða og sofa… :)

Á laugardeginum vöknuðum við kl 8 og fórum niður og fengum okkur morgunmat, vorum soldið hissa á hvað það var lítið úrval. Eftir matinn rölltum við í rúma klst á bílaleiguna og sóttum Opel östruna sem við ætluðum að hafa í 2 daga :P Svo keyrðum við í fyrirfram ákveðið moll að versla. Það gekk ekkert voða vel, H&M búðin var mjög lítil, fötin voru ekkert voðalega smart og þetta virtist vera svipað dýrt og hérna heima! Ég keypti mér samt peysu, skó og sléttujárn og svo barnaföt fyrir litlu dúllurnar mínar :) Bergur var orðinn frekar þreyttur á þessu búðarrápi og ég verð að viðurkenna að ég var það líka, ganga á milli búða og finna ekkert sem var varið í :( Um kl 16 fórum við á McDonalds, sem við borðuðum b.t.w. í hádegismat líka… :lol: Svo þutum við á hótelið að gera okkur reddý fyrir hátíðarmatinn, það átti nebbla að hittast í lobbýi hótelsins kl 18, allir með skrítna hatta :lol: Það var rosa góður matur, snöggsteikt naut (held ég að það hafi verið) í forrétt, lamb í aðalrétt og ís í eftirrétt, Bergur vann annað sæti fyrir fríkaðasta hattinn :D Við fórum heim um 23 en hinir voru áfram :D

Á sunnudaginn vökuðum við aftur fyrir kl 8, borðuðum morgunmat, þann daginn var rosa flottur matur og miklu meira úrval :) Svo keyrðum við í 4 tíma til Berlín í Þýskalandi. Það var geggjað, keyrðum í gegnum fjallaþorpin, ótrúlega fallegt og gaman að sjá eitthvað annað en þessa stóru bæi :) Komum til Berlín um 13 og fórum beint á Hard Rock að borða :D Góður matur :lol: Eftir matinn komumst við að því að allar búðir eru lokaðar á sunnudögum þannig að við fórum bara í dýragarðinn :D Það var soldið kalt þannig að við fórum frekar hratt yfir og keyrðum svo bara um Berlín, afskaplega falleg borg :) Þegar við lögðum af stað aftur til Prag var farið að dimma og mér stóð sko ekki á sama því vegirnir eru óupplýstir og við á 170km hraða… En við komumst sem betur fer heil á húfi á leiðarenda, skiluðum bílnum eftir miðnætti og fórum á hótelið að sofa :)

Við ákváðum að sleppa morgunmatnum á mánudeginum og sofa út :D Áttum samt að tjékka okkur út af hótelinu kl 12 þannig að við vöknuðum um 10 :) Þá byrjaði sko ruglið! Flugið var ekki fyrr en kl 23:25 þannig að við ætluðum að fara öll saman í moll að versla, tókum sporvagn sem reyndist ekki fara í rétta átt, þá tókum við annan sporvagn sem fór heldur ekki í mollið og var þá ákváðum við að labba eftir GPS tækinu sem Bergur var með :) Komum loksins í mollið 2 tímum eftir að við lögðum af stað :lol: Ætluðum að hittast öll kl 18, en um kl 16 voru flestir búnir að fá nóg af að versla og fóru í bæinn, nema við Bergur, Kalli og Sigrún nenntum ekki í bæinn þannig að við ákváðum að taka sporvagn nr 14 niður á hótel… fyrst tókum við hann í vitlausa átt, en eftir klukkutíma rúnt þá hoppuðum við út hjá e-u skrítnu molli, settumst niður þar og fengum okkur að drekka. Svo tókum við aftur vagn 14 niður á hótel… Nema að þegar við vorum að fara út úr vagninum þá kom gaur og spurði um miðana okkar, við sýndum honum þá og sögðumst vera að fara út þarna og hoppuðum út og hann á eftir okkur… Þá kom það í ljós að við höfðum stimplað miðana þegar við tókum vagninn í vitlausa átt og þeir giltu bara í 20 mín eftir það… Þannig að við þurftum öll að borga 700 kórónur í sekt en við vorum ekki með það mikinn pening á okkur og þá vildi hann bara fá vegabréfin okkar, við vorum ekki alveg á því að láta hann fá þau og þá hótaði hann að hringja á lögregluna, okkur langaði það ekki heldur þannig að okkur var fylgt í næsta hraðbanka… Hrikalega strangt þarna!! En þessi dagur var sko ekki búinn… Við fórum á flugvöllinn, flugum í 3 tíma og 35 mín, það var grenjandi rigning þegar við lentum kl 01:20. Við Bergur höfðum reddað okkur fari með Kalla og Sigúnu heim og Kalli hljóp útí rigninguna til að ná í bílinn… við biðum og biðum en ekkert bólar á Kalla… þá fær Sigrún nóg af því að bíða og hringir í hann, þá var hann bara búinn að steingleyma hvar hann lagði bílnum hehehe :D Bergur fór út að hjálpa til við að leita en fann hvorki bílinn né Kalla :lol: Sigrún var orðin heldur pirruð, enda mið nótt og við ekkert búin að sofa í næstum sólarhring, og ég stóð og hló að þessum óförum okkar… en, sem betur fer, eftir klukkutíma leit fannst bíllinn loksins og við komumst heim um hálf 4 :)

Allt er gott sem endar vel :lol:

Það eru myndir í myndaalbúminu hérna til hliðar, aðallega frá Berlín samt :)

Posted in Almennt | 3 Comments »