Fréttir á visir.is… Í báðum tilvikunum eru ungir drengir sem voru með stórmennskuskap og kjaft og það var lúskrað á þeim! Hvernig væri að foreldrar þeirra eldu þá bara betur upp?
Jæja þá eru bara 5 dagar í Costa del Sol :lol: Við leggjum af stað kl 12:40 á mánudaginn og komum heim kl 11:40 16 júní
Mamma og pabbi koma heim á morgun
Við Snæi og Bergur erum búin að skipta niður á okkur hæðum til að þrífa, ég tek auðvitað eldhúsið heheh
Mikið verður nú gott að fá þau heim!
Ég gleymdi að segja frá hinum hlutanum af helginni í síðasta bloggi… Á fimmtudaginn hringdi Steini bróðir og bað mig um að passa yfir nótt á föstudeginum því honum langaði að bjóða sinni heittelskuðu út að borða og gistingu á hóteli… Þannig að hann skutlaði stelpunum til mín um 6 á föstudeginum og Binna hafði enga hugmynd þá að þau væru að fara… :p Kl 7 fórum við stelpurnar í afmæli til hennar Katrínar Mist ( er ekki Mist beygt alltaf sem Mist bara? ) en þar var litli frændi mættur og tók bara nánast alla athyglina frá afmælisstelpunni :s En sonna er þetta bara þegar maður er svona lítill og sætur :) Það var rosa gott að borða í afmælinu, en það kom nú svosem ekkert á óvart, það er alltaf góður matur hjá Hildi frænku
Stelpurnar voru rosa duglegar að fara að sofa og svo voru þær sóttar í hádeginu
Ég var mjög sátt með lagið okkar í keppninni en ég er rosalega reið yfir hvað þetta er mikill klíkuskapur! Ég vil að við hættum að taka þátt í þessu rugli og gefum frekar peningana til langveikra barna! Takk fyrir í dag ![]()
Jáhh, á laugardaginn var Eurovisiondagurinn mikli, það var grillveisla hjá mér og Snæa
Hún byrjaði rosalega vel, fólk mætti og borðaði góðan mat og drakk mjöð
Svo kom óboðinn kunningi Bergs sem náði næstum því að eyðileggja kvöldið! Til að gera langa sögu stutta þá þurfti að hringja á lögreglu til að sækja hann eftir að hann kýldi í rúðuna á útidyrahurðinni þannig að hún brotnaði… Sem betur fer bara ytra glerið samt! Sumir kunna bara ekki að meðhöndla áfengi!
Í gær byrjaði Bergur svo að senda mail á glergaura sem sögðu að það væri hæpið að þetta gler væri til, enda búið að vera þarna frá því að húsið var byggt, Steini bróðir sagði að það væri sérsmíðað og væri geðveikt dýrt… En SEM BETUR FER er það til hjá honum Nikka í Glerborg og hann ætlar bara að redda þessu fyrir okkur í dag og auðvitað borgar vitleysingurinn sem braut gluggann! :mrgreen: Við höfum samt ákveðið að vera ekkert að láta mömmu og pabba vita fyrr en þau koma heim til að skapa ekki óþarfa áhyggjur og þá verður bara nýtt alveg eins gler komið í og ekkert mál :)
En þrátt fyrir þetta atvik var kvöldið alveg frábært og ég skemmti mér rosalega vel og það var svooo gaman að hitta vinina og eiga góða kvöldstund saman
Allt er gott sem endar vel ![]()
Mig dreymdi soldið skrítinn draum í nótt… Þetta gerðist ekki í draumnum en um 4 leitið stoppaði bíll hérna fyrir utan og 3 manneskjur voru með mikil læti fyrir framan svefnherbergisgluggann minn en fóru svo loksins í húsið á móti… Þá sofnaði ég og byrjaði að dreyma að þau hefðu sett 3 ketti inn um gluggann hjá mér, einn hvarf strax, einn var voða góður og kúrinn en einn var árásargjarn og reyndi að bíta mig í höndina þegar ég reyndi að koma honum út… Mig hefur dreymt þetta áður nema þá var bara einn köttur og hann beit mig mjög fast í höndina… Ég er með áhugaverða kenningu um þennan draum en ég held að þetta séu tvær fyrrverandi “vinkonur”, þar sem að kettir í draumum merkja svik og særindi… En þriðji kötturinn, sem var góður, held ég að sé hún Aldís besta vinkona mín en sá köttur líktist mjög henni Monsu gömlu kisunni hennar
Ég er nokkuð berdreymin held ég
Fyrir um ári síðan dreymdi mig að ég væri með nokkrum vinum í heimsókn hjá Stellu vinkonu, eftir smástund ákváðum við að skreppa á rúntinn en ég var driver… Þá spyr Stella hvort að við getum skutla pabba hennar e-rt og ég segi að það sé ekkert mál þó að ég viti alveg að bíllinn sé fullur fyrir… Á þeim tíma (ekki draumur lengur) var ég í 2. vinnum, líkamsrækt x3 í viku, skóla 12 tíma í viku, kóræfingum nokkrum sinnum í viku… Ég mætti sem sagt í vinnuna kl 9-5, fór eftir það að vinna á Subway, beint í skólann eða líkamsrækt og svo á kóræfingu til miðnættis Og ég var orðin bara fárveik… Þannig að ég tók draumnum sem að ég væri að gera of mikið og ég vissi það nú svosem alveg
Ég er alveg rosalega ánægð með hvað ég ákvað að gera því það breytti lífi mínu og ég er mjög hamingjusöm í dag
Þetta voru pælingar dagsins ![]()
Jæja, vika í að mamma og pabbi komi heim frá útlandinu, verð að segja að ég hlakka bara til
Heyrði í þeim í gær og þá voru þau að sigla frá Jamika, höfðu verið þar um daginn í þvílíkum hita og góðu veðri
Öfund öfund! Ég er búin að semja við mömmu um að gefa mér ferð til Jamika í 25 ára afmælisgjöf
Það styttist í Costa del Sol ferðina :D:D 6.5 vinnudagar híhííííí :mrgreen: Ég er búin að setja í litla tösku það helsta sem ég ætla að taka með mér og ótrúlegt en satt þá passar það í litla ferðatösku… Eeen ég á eftir að setja skó og eitthvað meira :D Ég hlakka svo til, er búin að vera að skoða litla bæinn sem við verðum í en hann heitir Estepona og er rétt hjá Malaga… Það eru markaðir á sunnudögum og miðvikudögum sem ég hlakka mjög til að kíkja á
Svo langar okkur soldið að leigja bíl og keyra og skoða OG fara í tívolí og dýragarð!!
híhí, ég er spennt
Heyrumst ![]()
Ég fór í morgun í tjékkið til að athuga hvort að ég geti farið í laseraðgerð. Hann setti svona vökva í augun á mér sem gerði augnsteininn risastóran og ég átti soldið erfitt með að sjá nálæga hluti eftir skoðunina, svo fékk ég þvílíkan sjokk þegar ég leit í spegilinn og sá að augun á mér voru svört
Bara gaman að þessu
En þetta gekk allt vel og ég má bara hringja þegar ég er búin að ákveða hvað ég ætla að gera og hann ætlar meira að segja að gefa mér afslátt því hann hefur gert aðgerðir á öðrum í fyrirtækinu sem ég vinn hjá
Þetta heillar svolítið, það væri svo gott að vera laus við gleraugun og linsurnar!!
Þangað til næst ![]()
Vá hvað ég var hrikalega pirruð í gær
En það er allt komið í lag núna, eða sko þangað til næst
Við Bergsi fórum í bíó í gær á Iron Man, meeeen hún var góóóð!! Mæli sko algjörlega með henni
Á næstu helgi er grillpartýið sem ég er búin að bíða svo lengi eftir
Það verður gaman, nema að það verði vont veður ![]()
Já, ég hef ekkert sagt frá mínu nýja lífi sem húsmóðir. Mamma og pabbi fóru semsagt fyrir 9 dögum til Florida og síðan þá hef ég verið húsmóðirin hérna heima. Ég verð að segja að þetta er ömurlegt starf! Ég set í þvottavél og þurrkara, brýt saman föt og kem þeim á rétta staði, set í uppþvottavél og tek úr henni, við skiptumst reyndar á að elda (sem betur fer!!) Enda er Bergur miklu betri kokkur en ég!
En það er alveg satt með það sem mamma sagði um daginn að maðurinn manns væri fyrsta barnið manns! Ég er sem sagt með tvo fullorðna menn hérna og hund sem er mjög loðinn og fer mjög mikið úr hárunum en þeir virðast ekki sjá alla lóna sem er um öll gólf, sem fer mjög mikið í taugarnar á mér og hvað sem maður biður þá um að ryksuga þá segja þeir alltaf “ég geri það á eftir” og svo “á eftir” þá eru þeir búnir að “gleyma því” eða of uppteknir í e-u öðru sem þýðir að ég fæ nóg og ryksuga bara sjálf og sko ekki sátt með það!!
Svo er ekki nóg að nota bara eitt glas undir vatn og safa, það eru glös út um allt og það er ekki hægt að setja þau í uppþvottavélina heldur eru þau bara skilin eftir á öllum tiltækum borðum eða ef ég er heppin þá eru þau sett í vaskinn! Ég er reyndar búin að nöldra svo mikið útaf þessu að hann Bergur er farinn að setja í uppþvottavélina… En ég meina, ég er líka að vinna allan daginn og mér finnst þetta bara svolítið ósanngjarnt!!
Ég talaði um þetta við hana Ásu vinkonu mína áðan og hún á víst við sama vandamál að stríða…
Hvað er málið með að þeir fatti ekki sjálfir að það þurfi að ryksuga eða setja í þvottavél?? Og ef það er uppþvottavél til staðar þá á ekki að vera neitt mál að henda disknum sínum eða glasinu í hana!!
Ég heiti sjálfri mér hér með að ala börnin mín upp við að hjálpa til á heimilinu!
Ein að deyja úr pirringi hérna! ![]()
Þá erum við Bergur mætt útí Grindavík, vöknuðum fyrir kl 7, sem er alveg met sko
Sæa og Hjörtur eru búin að vera á fæðingardeildinni í 6 tíma og lítið farið að gerast ennþá
En ég set fréttir hingað inn um leið og ég heyri eitthvað
————–Update—————-
Heyrði í Hirti fyrir áðan, það fer að styttast í strákinn
Verður vonandi kominn fyrir miðnætti
————Update————-
Jæja, hann kom kl. 18:30
Fæ að vita mælinguna á eftir
5040 gr og 56.5 cm
Fallegur strákur með dökkt hár og bollukinnar, set vonandi inn myndir í kvöld ![]()
