júní 27th, 2008

LOKSINS!! Ég er svo þreytt enda ekkert búin að fá að sofa út í marga marga daga! :(

Foreldrar hans Bergs verða að heiman yfir helgina ásamt systrum hans og við vorum beðin um að passa hann Kubb litla :) Við erum búin að bjóða Snæa í mat í kvöld, ætlum að hafa tortillur með kjúlla :D Það verður bara gaman :P

Við fórum í heimsókn til Ásu, Ágústar og Prins Ágústsonar á mánudaginn, hann er svo pínulítill miðað við Reyni Sæberg!! Þeim gengur alveg rosalega vel og það er ekki hægt að sjá að þetta sé þeirra fyrsta barn :P Mikið hlakka ég til að einast eitt stykki, svona e-n tíman í framtíðinni… ;)

Á miðgudaginn fórum við Aldís út að borða á energiu, ég er bara alveg hooked á þessu salati og Aldísi fannst það líka alveg geggjað :D Svo fórum við á Fridays og fengum okkur súkkulaðiköku og ís mmm :P Við töluðum og töluðum eins og gerist oft þegar stelpur hafa ekki hist í smá tíma :lol: En það var bara gaman, ættum að gera þetta oftar! :)

Ég get ekki beðið eftir að komast aftur í sumarfrí 26 júlí :D

Bæjó :)

Posted in Almennt | No Comments »
júní 25th, 2008

Hæ.

Það var geggjað gaman í útilegu um helgina. Fórum upp á Skaga til að horfa á Walter keppa og þeir stóðu sig allir svo rosalega vel, ótrúlegt hvað svona litlir menn geta verið duglegir :)

Bergur keypti sér bíl á miðgudaginn og við tróðum dýnu inní hann og sváfum þar :D Það var bara nokkuð gott, allavega þangað til að loftið var búið að leka úr, það var soldið óþægilegt :lol: Það var geggjað veður alla helgina og ég held að við höfum öll brunnið smá, nema Snæi enda kom hann svo seint :) Bergur, Hjörtur og Sæa eru öll með ýkt fyndið gleruaugnafar :mrgreen:

Ég fór til spámiðils í gær, það var mjög spes :) Margt sem hann sagði var ótrúlega rétt og hann vissi ýmislegt sem kom mér á óvart, en hann sagði að framtíðin mín lítur mjög vel út, hann sá okkur Berg áfram saman og sagði mér hversu mörg börn við munum eignast, þó að ég voni að við eignumst aðeins færri en það sem hann sagði! :lol: Svo er bara að bíða og sjá hvort að það sem hann sagði rætist :P

Í dag vaknaði ég eldsnemma og fór í dekur upp í skóla til Ásthildar frænku, hún fékk reyndar ekki að dekra mig en það var nú nokkuð gott samt sem áður, þurfti alveg að berjast við svefninn :lol: Ég fékk handsnyrtingu á aðra höndina, sem er soldið fyndið því ég var með bleikt naglalakk og er núna með rautt á hinni :mrgreen: svo fékk ég mega andlitshreinsun/bað og nudd, litun og plokkun, líkamsskrúbb, fór í e-ð appelsínuhúðartæki og fékk baknudd :D Þetta var alveg geggjað :P

Svona að lokum þá er ég kominn inn í háskólann á akureyri :lol:

Heyrumst :)

Posted in Almennt | 3 Comments »
júní 19th, 2008

Já, ég verð að segja að ég hafði rangt fyrir mér að tíminn úti myndi líða hraðar en hratt, mér fannst ég vera búin að vera á spáni í mörg ár! Það er allavega gott að vera komin heim :)

Fór út að borða með Ásthildi í gær, fórum á Energia í smáralindinni og ég fékk besta salat sem ég hef smakkað, ógeðslega gott :D Svo fórum við Bergur í ljós til að reyna að bæta fyrir að hafa ekki fengið neinn lit úti :lol:

Við ætlum að fara í útilegu um helgina uppá Akranes, Walter er að fara á fótboltamót þar og öll fjölskyldan ætlar að mæta :P Við förum samt ekki fyrr en á laugardaginn því að við eigum tíma í nudd á laugardagsmorguninn og viljum alls ekki missa af því :D

Það styttist óðum í Eyjar, við erum reyndar ekki búin að ákveða ennþá hvort við ætlum að fara… Mig langar mjög mikið í fjölskylduútileguna sem verður sömu helgi en ég hef misst af henni undanfarin ár :( En það kemur í ljós hvað við gerum…  

Heyrumst síðar :)

Posted in Almennt | 1 Comment »
júní 10th, 2008

Já, ég gleymdi alveg að segja frá því… Fyrir viku fórum við að versla í C.C. La Canada sem er risa moll u.þ.b. 15 min í burtu, en þar er einmitt H&M :D Við versluðum nú samt ekki mikið, þetta var eitthvað um 40 þús fyrir okkur bæði, hægt að fá nokkur föt fyrir það :P Ekkert voðalega ódýrt neitt samt!

Svo var annað sem ég átti eftir að segja frá en það eru rúmin hérna… Ég hef bara aldrei verið svona líkamlega og andlega uppgefin eftir heila nótt og ég er núna! Rúmin eru svo hörð að við erum alveg að drepast í líkamanum og vöknum mikið þreyttari en við vorum þegar við fórum að sofa :( Og þau eiga engar aðrar dýnur :( En það verður bara að hafa það!

Í gær fórum við að versla í La corte ingles sem er á Puerto Banus en það er mikill ferðamannastaður, það voru 3 hæðir, samt engar búðir, bara allt í einu stóóóru rými.. efst voru húsgögn, miðhæðin voru merkjavörur og neðst var svona hagkaupsbúð, ég keypti mér tvenna skó á 11 evrur :D Svo keyptum við mat, það var tortilla með kjúkling í matinn hjá okkur :D Og við keyptum meiri dvd, síðast keyptum við seríu af Alias og núna erum við svo hooked á henni að við keyptum aðra seríu í gær en það eru alls 5 seríur held ég :P Svo keypti ég 2 seriur af The Ghost Whisperer :D Þannig að við höfum nóg til að horfa á hehe :P

Við vorum að koma heim af ströndinni, vorum eitthvað að ræða það að keyra til Madrid og fara á Hard Rock því við höfum ekkert að gera hérna hvort eð er hehehe, sjáum til hvernig það fer :P

Kveðjur frá Spáni ;)

Posted in Almennt | 2 Comments »
júní 7th, 2008

Við vorum að fatta að við náum nettengingu hérna úti á svölum á íbúðinni okkar híhí :D Það mætti bara fullt af liði á hótelið í gær og núna eru svaka læti alltaf og bílastæðin full :( Ótrúlegt hvað þessir spánverjar þurfa að öskra sín á milli!! En við vonum bara að þetta sé bara helgarferð hjá þessu fólki… ;)

Í gær fórum við í sædýrasafnið, það var ósköp lítið og asnalegt og hákarlinn var alveg eins og þessi sem maður getur séð í húsdýragarðinum, s.s. ekki stór! :( Það tók 5 mín að labba í gegnum safnið og það kostaði sko EKKI lítið inn!! Urr! Svo vorum við að labba meðfram höfninni á Benalmadena þegar e-r maður grípur okkur og selur okkur bátsferð á skútu, við vorum 10 sem fórum, það var boðið upp á að synda í sjónum þegar við vorum komin langt út á sjó, það voru 4 sem lögðu í það, ekki við samt, ég er alveg skíthrædd við hákarla :mrgreen:

Í dag fórum við í riiisa dýragarð, hann var í tvennu lagi og maður þurfti að fara í svona hermannabíl til að komast í hlutann þar sem stóru dýrin voru :P Það var gaman :D Svo fórum við í annað sædýrasafn sem var miklu betra, þar labbaði maður úti og það voru slöngur og höfrungar og alls konar dýr :D Fórum á sýningu þar sem að gaur labbaði um með tarantúllu og slöngur um salinn og leyfði fólki að snerta, hætti mér ekki alveg svo langt ég var mjöööög nálægt!! :D Þetta var bara nokkuð skemmtilegur dagur, búin að vera úti í sólinni soldið lengi og orðin alveg dauðþreytt, erum vön að leggja okkur á milli 5 og 6 hehe :lol:

Á morgun er svo planið að fara á ferðamannamarkað í bænum :D Það verður geggjað :P Svo er eiginlega bara spurning hvað við gerum alla næstu viku, erum eiginlega búin með alla garða og söfn sem okkur langaði að skoða… Erum reyndar að fara á töfrasýningu á næsta laugardagskvöld sem Bergur pantaði fyrir okkur :D Svo held ég að það sé bara ströndin og tjill við sundlaugarbakkann á hótelinu :P

Jæja, nenni ekki meir í dag, heyrumst :)

Posted in Almennt | 1 Comment »
júní 6th, 2008

Tad er svaka gott vedur herna a spani :D Hotelid er fint, stadsett i e=u ibudarhverfi, ekkert skemmtilegt nalaegt… Mjog dyrt ad borda herna, en vid erum buin ad fara i supermarkad og versla okkur mat :D Svo er sundlaugin bara opin a milli 10-20, sem mer finnst solldid asnalegt tvi solin kemur upp miklu fyrr en tad…

 I gaer forum vid a Gibraltar, en tad er bresk nylenda alveg ut a enda a spani :D Tad var rosa gaman, hitinn for i 32 stig, fengum okkur Pizza Hut ad borda :D

Vid erum buin ad fara i tivoli, sem var ekkert svakalegt, vorum 0ll marin og aum eftir illa smurd taeki :lol: Forum i vatnsrussibana og vorum rennandi blaut eftir tad :mrgreen: Svo erum vid buin ad ath strondina lika, hun er sma spotta i burtu en madur getur alveg labbad tangad. Vid erum buin ad fara i sama mollid 3 daga i rod, keyptum dvd spilara og myndir i gaer, tad er nebla ekkert ad gerast herna a kvoldin :S

Vorum i solbadi seinni partinn i gaer, held eg hafi brunnid sma i andlitinu, samt ekkert mikid, er bara adeins raud, engar ahyggjur mamma hehe :)

Nuna erum vid a leid i saedyrasafn til ad sja alvoru hakarl :D Svo forum vid kannski i dyragard ef timi gefst til :)

En vid bidjum bara ad heilsa, hola :)

Posted in Almennt | 1 Comment »
júní 1st, 2008

Mamma og pabbi komu heim á fimmtudaginn, ýkt brún og sæt :D Gott að fá þau loksins heim! :P

Þetta var annasöm helgi!

Í morgun eignaðist Ása vinkona mín lítinn strák :D Hann er 3890gr og 53cm og alveg ýkt sætur og yndislegur :) Fór í heimsókn til þeirra áðan og þeim heilsaðist bara nokkuð vel þrátt fyrir hrikalega erfiða fæðingu en Ása missti vatnið á föstudagskvöldið, var sett af stað í gær og hann var að lokum tekinn með keisara í morgun :o En allt er gott sem endar vel :)

Í dag var skírn hjá honum Litla Prins en hann var skírður því fallega nafni Reynir Sæberg :) Hann var yndislegur eins og venjulega og lét ekkert á sig fá að þurfa að ganga á milli fólks allan daginn :P Til hamingju með nafnið þitt Reynir Sæberg :P

Á morgun er stóri dagurinn!! Við Bergur leggjum í hann um 10 leitið út á flugvöll og lendum um kl 19 (að staðartíma) á flugvellinum í Malaga :D Þaðan keyrum við á bílaleigubílnum okkar á hótelið sem er víst hvergi samkvæmt google earth… En það hlýtur nú að vera e-r staðar :mrgreen: Kemur í ljós :P

Framhald síðar ;)

Posted in Almennt | 1 Comment »