Jæja, þá er ég loksins komin í smá sumarfrí aftur
Og ég er hætt í vinnunni minni og byrja í nýju vinnunni 5 ágúst
Ég er ekkert smá spennt híhíhí
Ég er búin að vera að tjilla soldið með afa upp á síðkastið hehe
Við förum saman uppí garð og á kaffihús og í búð og sonna
Svo um daginn fórum við í gegnum gömlu fötin hennar ömmu og ég fann þar nokkra flotta kjóla, pils og eina blússu, hitt fór í rauða krossinn
Svo fór ég í bankann í síðustu viku og stofnaði reikning fyrir börnin mín, það er ekki mikið inni á honum ennþá en það verður vonandi eitthvað þar þegar þau verða stór, þ.e.a.s. ef að ég eignast einhvern tíman börn hehe
En maður verður að hugsa fram í tímann, ekki satt?
Ég er að fara í útilegu með mömmu og pabba á morgun eða hinn
Hef voða lítið að gera hérna í bænum þegar Bergur er að vinna, Ásthildur á sjó og Aldís í Svíþjóð, þannig að ég ég ákvað að skella mér bara með þeim og svo koma Snæi og Bergur á föstudaginn og hitta okkur
Ég gerði soldið fyndið í síðustu viku
Ég hringdi loksins í stelpurnar sem áttu að vera með mér í bekk í skólanum… Við vorum 10 en það kom í ljós að það var engin nema ein búin að fá svar og 4 ákváðu að fara frekar í HÍ og þegar ég hringdi upp í háskóla þá var mér sagt að þær væru kannski bara ennþá á biðlista sem mér finnst soldið asnalegt því þær voru allar komnar inná nemendalistann minn
Svo fór ég að tjékka á hverjar eru með mér í tímum og þá eru það akkurat þessar sem ætluðu frekar í HÍ og engar af hinum
Ég vona bara að allar hinar komist inn líka
Ég ætla að njóta þess að vera heima hjá mér í kvöld og ætla núna að fara og láta renna í bað og slaka á
Eigið þið góða verslunarmannahelgi ![]()