Já ég er búin að vera þvílíkt löt upp á síðkastið! Er ekki einu sinni búin að vera að standa mig í ræktinni í heila viku :S
En í fréttum er semsagt að ég er byrjuð í skólanum, fór á nýnemadaga á Akureyri fyrir viku og var þar í 2 daga með Bergsa, fengum heavy nice íbúð rétt hjá skólanum þannig að ég gat labbað heim og sonna
Hefði sko alveg verið til í að vera lengur, viku í minnsta lagi!
Áttum að vísu íbúðina frammá föstudaginn en sá sorgaratburður átti sér stað að hún Hadda amma hans Bergs lést í vikunni áður en við fórum og ættingar hans voru svo yndislegir að hafa jarðarförina ekki á meðan nýnemadagarnir voru svo við gætum bæði komist
Þannig að við lögðum af stað heim eftir skóla á fimmutudeginum, reyndar eftir að hafa leitað að ísbúðinni Brynju og fengið okkur ís og lagað bremsurnar í bílnum í 2 tíma og við komum loksins heim um 3 leitið (um nóttina sko!)
Svo var brúðkaup á laugardaginn, það var mjög gaman þrátt fyrir stutt stopp
Til hamingju Agnar og Inga með stóra áfangann
Fram undan er svo bara skóli og vinna, mig dreymir um að fara til köben fyrir jól en það er ekki að fara að gerast á mínum launum
En seinna bara
Eigið þið góða daga gott fólk ![]()