Það var bjartur dagur í Hafnarfirði í gær þegar FH varð íslandsmeistari í fótbolta 2008
Við Ásthildur mættum á leikinn þegar 15 mínútur voru eftir, þá var staðan 1-0 fyrir FH og jafntefli útí Keflavík. Stuttu seinna skoraði Fram útí Keflavík og FH skoraði annað markið sitt og tryggði sér þar með bikarinn
Við Snæi og Andri kíktum á Fjörkrána í gær þar sem meistararnir voru að fagna og þar var mikil gleði og alveg stappað af fólki
Svo er það bara meistaraballið krakkar mínir
Held að það sé á næstu helgi og orðið á götunni er að Brimkló eigi að spila og að ballið verði ekki í Kaplakrika þetta árið heldur í íþróttahúsinu á strandgötu
Ég skellti mér á skrall í gær til hennar Ásthildar frænku, það var mjög gaman, absenth drykkja og læti hehe
Held að stelpurnar séu soldið þunnar í dag, en ekki litli engillinn hún Rebekka híhí
Annars á ég að vera að læra, er eitthvað löt þessa helgi :S
Heyrumst gott fólk, bæjó ![]()