Já, við fluttum inn á mánudaginn, erum búin að gista 3 nætur og ég held að ég hafi bara sjaldan sofið jafn vel
Ég vakna aldrei við vekjaraklukkuna og þegar Bergur segir mér að klukkan sé búin að hringja þá held ég alltaf að hann sé að plata mig
Það er orðið rosalega kósý hjá okkur, fengum gefins hornsófa frá frænda hans Bergs þannig að það er eitthvað í stofunni hjá okkur hehe
Við keyptum okkur líka sófaborð og sjónvarpsborð í IKEA sem er rosa flott
Í næsta mánuði ætlum við svo að kaupa borðstofuborð svo við getum haldið matarboð og spilakvöld og sonna híhí
Mér finnst samt voðalega leiðinlegt að vera flutt að heiman, kannski fæ ég ekki að hitta mömmu á hverjum degi
En sem betur fer er ég ennþá í Hafnarfirði, ég hefði ekki meikað að vera lengra í burtu
Svo er reyndar ekki langt að labba til mömmu og pabba, bara niður áslandsbrekkuna og niður og niður og þá er ég komin
Svo býr Ása mín og Solla rétt hjá, það er mjög gaman
Ég er komin með svo mikið ógeð af að taka upp úr töskum og raða og flytja ohh, ég hugsa að ég eigi aldrei eftir að flytja aftur! Þvílíkt leiðinlegt!
Já, datt í hug að setja inn smá jólagjafalista hérna, jólin eru nefnilega alveg að koma og best að ljúka jólainnkaupunum sem fyrst áður en allt fer til fjandans
Þetta er svona það sem okkur vantar eins og er, gæti örugglega bætt helling við listann en man ekki meira akkurat núna
Kökuform, Hraðsuðuketill, Mixer, Töfrasproti, Brauðrist, Bökunarplötur, Uppskriftabækur, Hnífasett, Ílát, Viskustykki, Ausur, Hitabrúsi, Skurðarbretti, Stórt sigti
Hitaplattar
En meiri fréttir seinna, bæjó